mánudagur

Vilhjálmur Brúskur naggagrey

Jæja þá fer ég að fara að leggja í hann. Ég þarf að skilja naggrísinn minn hann Vilhjálm eftir hjá Súsönnu. Ég vona bara að hann verði heill heilsu þegar ég kem, ég vona að hann verði ekki vannærður. Hún Súsanna er bara svo askoti hrædd við litla greyið. Svo ef einhver á leið hjá Engihjallanum fræga þá væri nú gott að viðkomandi myndi vera svo elskulegur að skella smá naggafóðri í skálina hjá honum Villa litla.

En ég óska eftir að fá vísbendingar um það hver var svona svakalega sniðugur að skrá Súsönnu í Djúpulaugina hahahaha. Mér þótti það hreint alveg frábært og hefur viðkomandi glatt mitt litla hjarta á þessum gráa mánudagsmorgni!

Bless, bless og verið öll hress!

2 ummæli:

Nadia sagði...

Afhverju heldurðu að hún hafi verið sú eina sem var skráð? Muhahahaha....

Þig grunaði ekki neitt þegar ég var að spurja þig hversu há og þung þú varst.

Nafnlaus sagði...

hahaha þú ert geðveik!