Ég ákvað í skyndi að prufa að sækja um íbúð á Keili þar sem mig vantar íbúð og leiguverð í Rvk er ómögulegt og ég er langt frá því að komast á stúdentagarða þrátt fyrir óralanga bið.
Ég henti inn umsókn í gærkveldi og var hún samþykkt kl 09:32 í morgunn.
Kl 09:43 var ég komin með íbúð. Ég hentist til Keflavíkur að skoða hana og brá mér heldur í brún. Hún er vægast sagt stórfurðuleg. Eina orðið sem lýsir íbúðinni er: Skrítið.
Ég veit ekki hvað ég á að gera. Vantar íbúð og þetta furðuverk er það eina sem ég fæ sem ég hef efni á.
Veit bara ekki.
mánudagur
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
10 ummæli:
Hahahaha. Já já. Skemmtu þér vel á Traffík. Ertu ekki hvorteðer alltaf að djamma í Keflavík.
hver ert þú púðluhundur?
Ég, Súsanna. Bara smá grín. Voff, voff. Ætlarðu að vera módel eða ekki?
Jú ætli það ekki. Vön manneskja hér á ferð og auðvitað gerir maður þetta fyrir vini sína.
Hvenær er mæting í fjöruna? Í hvernig klædd? Pollagalla?
sjjit maður á ekki að skrifa hluti svona þreyttur. í hvernig klædd?!
Helst svörtum kjól og berfætt.
sjiii..
þarf ég að koma m svartan kjól eða kemur þú með hann?
Ég á nokkra. ermar, stutterma eða ermmalausan?
Má vera með stuttum ermum eða hlýrum en þarf að vera hnésíður eða rétt fyrir neðan hné.
Á hnésíðan með engum ermum en ekki hlýrum, m beinu hálsmáli, ekki fleginn og svörtu 5 cm breiðu bandi um mittið. mjög ´plein´
hvaða fjöru? hvenær?
Bara úti á Nesi, ekki langt frá Golfvellinum
Skrifa ummæli