miðvikudagur

Peningar, myndlist og rugludallar.

Ég er orðin allveg nokkuð vel pirruð á peningaplokkuninni sem á sér stað í heiminum í dag. Um daginn ákvað ég að drífa mig í akstursmat til að endurnýja ökuskírteinið mitt og viti menn, ég þurfti að borga 5000 kr. fyrir það eitt að rúnta um bæinn með ökukennaranum mínum. Allt í lagi. Svo þurfti ég að láta taka mynd af mér en ég og sús sambýlingur fórum í passamyndaklefa og létum taka glæsilegar myndir af okkur og kostaði það 500 kr. Þegar ég´fór svo að skila inn myndinni og akstursmatsblaðinu hjá sýslumanninum í Kópavogi var ég send yfir til gjaldkera þar sem ég átti að borga 3900 kr! Ég er fátæk, mjög fátæk. Hvar er Hrói Höttur þegar maður þarfnast hans?

Ég ætla að titla mig myndlistakonu. Þegar ég kynni mig þá segi ég að ég sé annas myndlistakona. Ég er nefnilega alltaf að mála. Það þýðir samt ekki að ég hafi einhverja hæfileika ónei. Ég hef ekki einu sinni hugmyndaflug fyrir það. Ég málaði þó flotta mynd áðan. Ég ætla að gefa Svanhvíti vinkonu minni hana í afmælisgjöf. En hugmyndin af sjálfri myndinni er stolin. Ég stal henni af 5 ára stúlku sem er á leikskólanum hennar súsönnu. Ég hermdi eigilega allveg eftir henni. Hún er glæslileg... en samt svolítið skuggaleg.

En ég er líka orðin rugluð. Ég hugsa ekki áður en ég framkvæmi. Um daginn var ég að drífa mig svo mikið út á svalir að blása sápukúlur að ég hoppaði upp í ljósið í stofunni minni og fékk kúlu, hefði viljað gráta en gat það ekki. Það komu þó furðuleg hljóð út úr mér. Ég fékk svo stól að gjöf um daginn og ríf hann´úr pakkanum og byrja að klippa á einhver bönd. Eftir að ég var búin að klippa all mörg bönd og furða mig á tilgangsleysi þeirra þá fattaði ég að þessi bönd héldu manni uppi er maður sest í stólinn. Og að lokum þá var ég að þvo á mér hárið í gær og fannst sjampóið eitthvað skrítið. Leit svo til hliðar og uppgötvaði að ég hafi sett Gillette raksápu í hárið á mér.
Ef ég vissi í hvaða heimi ég væri í.

3 ummæli:

Nafnlaus sagði...

hæ sæta, til hamingju með bloggsíðuna. þú auðgar líf heimavinnandi húsmóðurinnar með þessu framtaki. kossar og knús dúllurassinn minn. systa.

Nafnlaus sagði...

Takk snúllurasinn minn. ég býð bara eftir að þú byrjir. Elska þig!

Nafnlaus sagði...

Ég er komandi inn á síðuna þína af og til, til þess að fylgjast með einhverju bloggi. Hvet þig til þess að skrifa eitthvað skemmtilegt. Leynilegur aðdáandi.