fimmtudagur

Leikskóli, skósóli, í bóli á réttu róli

Jæja þá er ég byrjuð í nýrri vinnu sem er bara æðislegt nema hvað ég er ekki enn laus úr minni gömlu...á eftir að vinna uppsagnarfrestinn minn. Ég þarf því að fara á nokkrar næturvaktir í viðbót sem er bara ömulegt. Ég er nefnilega ekki að meika þessar næturvaktir lengur. En í gær byrjaði ég í hinni vinnunni minni sem er s.s. á leikskóla og er bara rosalega gaman að vinna þar, allavegana miðað við fyrstu kynni af starfinu og starfsfólkinu. Svo er bara svo æðislegt að vakna en ekki fara að sofa á morgnanna. Ég tími samt ekki að hætta í hinni vinnunni og verð því á einhverjum kvöld- og helgarvöktum. Það skondna við þetta allt saman er að ég er að vinna með gömlu fóstrunni minni af Fellaborg og það er líka önnur stelpa sem var með mér á Fellaborg sem er að vinna þarna! Alveg hreint magnað.

Úfff...

4 ummæli:

Súsanna Ósk sagði...

Já, það er ansi magnað!

Nafnlaus sagði...

hahaha já lítill heimur, stór geimur!

Súsanna Ósk sagði...

Bíddu, af hverju man ég ekki eftir að hafa kommentað þetta?

Nafnlaus sagði...

hahahaha fyllibittan þín!